Um skólann



Gítarskóli Íslands hefur starfað frá júni 1993.
Kennt er á kassagítar, klassískan og þjóðlagagítar, rafgítar, rafbassa og kontrabassa, auk tónfræðigreina.
Hljóðfærakennsla fer fram í einkatímum og tónfræðikennsla í hóptímum og miðast við áhuga og getu hvers og eins nemanda.
Við Gítarskóla Íslands starfa fjölmargir hæfir og vel menntaðir kennarar sem leggja metnað í það að nemendur fái kennslu sem hæfir áhugasviði og getustigi hvers og eins, með góðan árangur og framfarir allra að markmiði.
Í Gítarskóla Íslands er boðið upp á nám samkvæmt námsskrá Menntamálaráðuneytisins. Um er að ræða Klassíska braut og Jazz/rokk braut, ásamt tónfræðigreinum.
Sótt er um slíkt nám á vefsvæði Reykjavíkurborgar - www.rvk.is
Í skólanum er einnig boðið upp á námskeið á haustönn í 12 vikur og á vorönn  í 12 vikur.
Í júnímánuði hafa verið haldin “crash course” námskeið i 4 vikur þar sem eru 2 kennslustundir i viku.
Öll námskeiðin eru kennd í Einkatímum. Jafnframt hljóðfæranáminu er mögulegt að fá tilsögn í lagasmíðum, hljóðupptökum og hljóðvinnslu.
Allir eru velkomnir á námskeiðin, byrjendur og lengra komnir, á öllum aldri.

Allar nánari upplýsingar fást í síma 581-1281 
og gegnum netfangið gitarskoli@gitarskoli.is

(c) Gítarskóli Íslands. Knúið með Blogger.